ÚTGERÐ HUGMYNDAHÚSS HÁSKÓLANNA
- SJÓSETNING
Þér er hér með boðið að vera viðstödd/viðstaddur sjósetningu Útgerðar Hugmyndahúss háskólanna.
Dagskrá
Ingibjörg Gréta, framkvæmdarstjóri Hugmyndahússins býður gesti velkomna.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sjósetur Útgerð Hugmyndahússins
Íslandsbanki, N1, Marorka, Jónar Transport, VÍS og Síminn...
[read more]
ÚTGERÐ HUGMYNDAHÚSS HÁSKÓLANNA
- SJÓSETNING
Þér er hér með boðið að vera viðstödd/viðstaddur sjósetningu Útgerðar Hugmyndahúss háskólanna.
Dagskrá
Ingibjörg Gréta, framkvæmdarstjóri Hugmyndahússins býður gesti velkomna.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sjósetur Útgerð Hugmyndahússins
Íslandsbanki, N1, Marorka, Jónar Transport, VÍS og Síminn skrifa undir samstarfssamning við Útgerð Hugmyndahússins
Jón Gnarr flytur hvatningarræðu
Gjörningarými Útgerðarinnar hefur verið starfrækt frá því í janúar en nú bætist frumkvöðlastarfssemin við. Í gjörningarýminu hefur Íslenski Dansflokkurin starfað, Herbergi 408 (netleikhúsið) verið með beinar útsendingar og fleiri listamenn unnið að list sinni.
Við ætlum að núa saman skapandi greinum, tækni, vísindum og viðskiptum í Útgerðinni. Bjóða fólki að vaða út fyrir þægindarammann og hafa þannig frelsi til að mistakast.
Við höfum fengið fjölmörg fyrirtæki í samstarf með okkur.
Íslandsbanki, N1, Jónar Transport, Marorka, VÍS og Síminn hafa öll lagt okkur lið - ómetanlegt lið sem seint verður þakkað.
Við viljum með Útgerðinni hvetja menntafólk til að skapa sér tækifæri og fara í nýsköpun. Í Hugmyndahúsinu er allt inni í myndinni og ekkert ómögulegt!
Við hlökkum til að sjá þig
Bestu sólarkveðjur úr Grandagarðinum