Hæ Íslendingar! Jónsi lýkur heimstónleikaferð sinni á þessu ári í kjölfar útgáfu 'Go' í Laugardalshöllinni 29. desember.
Miðar eru nú til sölu á
http://midi.is/tonleikar/1/6143.
Jónsi hefur ákveðið að gefa 300 unglingum á aldrinum 13 - 16 ára tækifæri að komast á tónleikana á miðaverði sem það ræður við eða 1.000.- kr. og verður staðsetning...
[read more]
Hæ Íslendingar! Jónsi lýkur heimstónleikaferð sinni á þessu ári í kjölfar útgáfu 'Go' í Laugardalshöllinni 29. desember.
Miðar eru nú til sölu á
http://midi.is/tonleikar/1/6143.
Jónsi hefur ákveðið að gefa 300 unglingum á aldrinum 13 - 16 ára tækifæri að komast á tónleikana á miðaverði sem það ræður við eða 1.000.- kr. og verður staðsetning þeirra á bekkjunum fyrir neðan stúkuna. Þetta fyrirkomulag var einnig á tónleikum Sigur Rósar í Laugardalshöll i lok árs 2008 og mæltist vel fyrir hjá unglingunum og foreldrum þeirra.
Aðgöngumiðar fyrir 13 - 16 ára verða einungis seldir á skrifstofu midi.is, Fákafeni 11, 2. hæð gegn skilríkjum og getur hver unglingur keypt einn miða á tónleikana. Opið er virka daga milli 9 - 17.
http://www.jonsi.com