English below.
www.Framadagar.is Facebook síða: Framadagar Háskólanna
Framadagar í ár verða haldnir með glæsibrag, miðvikudaginn 9. febrúar í Háskólabíói kl 11 - 17 !
Framadagar er árlegur viðburður í Háskólalífinu þar sem helstu fyrirtæki landsins kynna starfsemi sína fyrir háskólanemendum.
Markmið Framadaga er að háskólanemar geti kynnt sér starfsemi helstu fyrirtækja landsins og aukið þar með líkur á sumarvinnu, framtíðarstarfi eða verkefnavinnu.
Sömuleiðis að fyrirtæki kynnist mögulegum starfsmönnum hvort sem er sumarstarfsmönnum eða framtíðarstarfsmönnum. Sannkallað stefnumót nemenda og fyrirtækja.
25 Fyrirtæki kynna starfsemi sína í ár.
Yfirlit yfir fyrirtækin:
http://framadagar.is/index.php?id=132
Örfyrirlestrar verða haldnir yfir daginn af þekktum einstaklingum úr viðskiptalífinu og kennarar úr HÍ og HR munu etja kappi í spurningakeppni.
Lukkuhjól Framadaga verður síðan einnig á staðnum þar sem rúmlega 80 glæsilegir vinningar verða í boði!
Dagskrá :
- 11.00 Ávarp verndara Framadaga, Katrín Jakobsdóttir og formleg setning Framadaga 2011.
- 12.00 Salur 3: Sighvatur Lárusson frá Northern Lights Energy. NLE stefnir að rafbílavæðingu Íslands. Auk þess talar Sighvatur um nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi og framleiðslu/samsetningu rafbíla á Íslandi.
- 12.50 Salur 3: Tryggvi frá Góðu Vali talar um: Einföld ráð sem tryggja þér draumastarfið.
- 13.40 Salur 3: Magnús Árnason frá LazyTown talar um fyrirtækið sem öll börn elska.
- 14.30 Salur 3: Ólafur Andri Ragnarsson frá Betware talar um: Tækniþróun á 21. öldinni, hvað finna þeir eiginlega upp næst?
- 15.30 Salur 2: Spurningakeppni milli kennara úr HÍ vs. HR kennurum.
Spyrill : Dr. Gunni
Kennarar HR:
Friðrik Larsen – viðskiptadeild
Þórður Víkingur Friðgeirsson – Verkfræðideild
Sigurður Tómas Magnússon – Lagadeild
Kennarar HÍ:
Margrét Sigrún Sigurðardóttir - Viðskiptafræði
Hulda Þórisdóttir - Stjórnmálafræði
- 16:00 Salur 3: Úthlutun úr Orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunar. Veittir verða styrkir til nemenda í meistara- eða doktorsnámi og styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og orkumála. Heildarupphæð styrkja er allt að 55 milljónir króna.
Léttar veitingar verða í boði á staðnum og að sjálfsögðu er öllum gestum og gangandi velkomið að koma á Framadaga.
Í fyrra mættu rúmlega 2000 einstaklingar á Framadaga og hefur viðburðurinn notið mikilla vinsælda meðal háskólanemenda.
Fyrir neðan má sjá frétt frá Framadögum 2010.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2010/02/10/freista_thess_ad_na_frama/
Stjórn Framadaga 2011:
Gunnar Ingi Valdimarsson
Brynjar Freyr Halldórsson
Jóhanna Magnúsdóttir
Kjartan Ólafsson
Arnar Freyr Gíslason
Daníel Ýmir Rigollet
Vilhjálmur Maron Atlason
Helga Björg Antonsdóttir
Kristín Grétarsdóttir
-----------------------
It is time for the annual Career days!
The Career days will be held for the 17th time in the university theater on Wednesday the 9th of February form 11-17
25 companies and organizations will be promoting what they have to offer University students.
There will be micro lectures- a wheel of fortune with over 80 prizes and a quiz between lecturers form the Uni. of Iceland and Uni. in Reykjavík. Host and author of the questions will be the legendary Dr. Gunni.
Please come and take a look at what the future might hold for YOU.
Best.
The Career Days Organizing committee