Í tilefni
http://socialmediaweek.org/ er rétt að við hittumst og lítum á það helsta sem hefur gerst markvert hér á landi og horfum fram á veginn.
Örkynningar frá Takk Takk, Meniga, dohop og Ring.
Vætum í kverkunum og kjöftum um þetta yndislega internet.
------Valgeir Valdimarsson - Takk Takk ---
Valgeir Valdimarsson stofnandi Takk Takk fékk verðlaun núna um seinustu helgi...
[read more]
Í tilefni
http://socialmediaweek.org/ er rétt að við hittumst og lítum á það helsta sem hefur gerst markvert hér á landi og horfum fram á veginn.
Örkynningar frá Takk Takk, Meniga, dohop og Ring.
Vætum í kverkunum og kjöftum um þetta yndislega internet.
------Valgeir Valdimarsson - Takk Takk ---
Valgeir Valdimarsson stofnandi Takk Takk fékk verðlaun núna um seinustu helgi fyrir Iceland wants to be your friend.
http://www.takktakk.com/presents/icelandwantstobeyourfriend/
------Einar Gústafsson - Meniga --------
Meniga hafa einnig verið að sópa að sér verðlaunum hérlendis og erlendis. Einar ætlar að segja okkur aðeins frá því hvernig þeir nota Twitter og aðra pósta til að koma vöru sinni á framfæri.
------Jóhann Þórsson - dohop----------
Jóhann Þórsson er 32 ára höfuðborgarbúi sem festist óvart í internetinu. Fæddur í Keflavík en fluttist ungur til Ísrael, síðan Króatíu, Akureyri, Reykjavíkur og London, en býr nú í Kópavoginum. Stefnan var tekin á frama í genatækni og ég get stoltur státað af rándýrri mastersgráðu með flóknu nafni í þeim geira. Fékk vinnu hjá deCode en var sagt upp 1. Apríl 2008 (no joke). Fór að forrita hjá Dohop í framhaldinu og gæðin voru slík að ég var snögglega færður yfir í markaðsdeildina. Í vinnunni fel ég mig á Facebook, Twitter og í Mad Men stellingum.
------Einar Ben - Ring----------------
Einar Ben er hausinn á bakvið markaðssetningu Ring á netinu. Einnig tilnefndur til SVEF verðlauna en það geta ekki allir unnið. Ringjarar er líklega fjölmesta facebook síðan og taktar Ring í kringum Iceland Airwaves voru alveg til fyrirmyndar.
http://www.youtube.com/watch?v=mXfHt3Wcj-o