(UPPSELT)
Nú býðst þér einstakt tækifæri til að fá sannkallaða vítamínsprautu sem hressir, bætir og kætir. Á þessari heilsdags námstefnu mun Brian Tracy sem er í fremstu röð fyrirlesara heims á sviði árangurs og stjórnunar, færa þér sannkallað hlaðborð hagnýtra hugmynda og hnitmiðaðra ráða sem þú getur virkjað undireins til að bæta ánægju þína, árangur...
[read more]
(UPPSELT)
Nú býðst þér einstakt tækifæri til að fá sannkallaða vítamínsprautu sem hressir, bætir og kætir. Á þessari heilsdags námstefnu mun Brian Tracy sem er í fremstu röð fyrirlesara heims á sviði árangurs og stjórnunar, færa þér sannkallað hlaðborð hagnýtra hugmynda og hnitmiðaðra ráða sem þú getur virkjað undireins til að bæta ánægju þína, árangur og ávinning í starfi og einkalífi.
UM NÁMSTEFNUNA:
Námstefnan verður brot af því allra besta úr verkfærakistu Brian Tracy. Þekkinguna setur hann fram í ljósi þess hversu vel hann þekkir orðið til á Íslandi en þetta verður sjöunda heimsókn hans til landsins. Fyrir þá sem hafa séð hann áður þá verður þessi námstefna frábær frískun. Fyrir þá sem eru að koma í fyrsta sinn þá fá þeir úrval af því allra besta sem Brian hefur fram að færa.
Fyrir hádegið fjallar hann um innra umhverfið, þ.e. þig sem einstakling og hvað einkennir þá sem ná stöðugum og uppbyggilegum árangri, jákvætt hugarfar, markmiðasetningu, tímastjórnun og sigurgleði svo fátt eitt sé nefnt. Auk þess fjallar hann um hvernig á takast á við streitu, þreytu og mótlæti. Allt sem gerir þig að heilsteyptari, betri og sigursælli einstaklingi.
Eftir hádegið fjallar hann svo um ytra umhverfi þitt, fjármálin, vinnuna, verkefnin, vinina, fjölskylduna og framtíðina. Hann tæpir á flestu þeim eiginleikum sem þú þarft að búa yfir til að hámarka árangur verkefna þinna, laða fram það besta í samstarfi við aðra, byggja upp hamingjuríkt fjölskyldulíf og móta spennandi og sigursæla framtíðarsýn. Allt sem gerir þig að verðmætum stjórnanda, starfsmanni og maka.
UM FYRIRLESARANN:
Brian Tracy er fremstu röð fyrirlesara í heiminum í dag á sviði persónulegs árangurs, persónuþróunar og stjórnunar. Hátt í fimm milljón manns hafa sótt námstefnur hans um allan heim á undanförnum 30 árum. Hann er metsöluhöfundur tuga stjórnunarbóka sem selst hafa í milljónum eintaka. Þrjár þeirra hafa komið út á íslensku (Hámarksárangur, Farsæld er ferðalag og 100 ófrávíkjanleg lögmál um velgengni í viðskiptum). Þetta verður sjöunda heimsókn hans til Íslands þannig að hann þekkir orðið afskaplega vel til íslenskra aðstæðna og þeirra sérstöku áskorunar sem íslenskt athafna- og viðskiptalíf stendur frammi fyrir núna.
Brian er upphaflega frá Kanada en býr nú í San Diego í Kaliforníu þar sem hann rekur þrjú ört vaxandi fyrirtæki. Hann hefur ferðast og unnið í yfir 80 löndum í 6 heimsálfum og talar 4 tungumál. Það sem einkennir hann sem fyrirlesara er hversu jarðbundinn hann er. Framsetning hans á efninu einkennist af þeirri meginhugsun að hún sé einföld, hagnýt og í þannig búningi að þú getir undireins farið að nýta þér það við úrlausn þeirra verkefna sem þú ert að glíma við. Hann beitir líka kímnigáfunni óspart sem gerir námstefnur hans eftirminnilegar, skemmtilegar og fyrst og fremst áhrifaríkar þannig að þær hleypa þér kappi í kinn.
-----------------------------------------------
Fullt verð: kr. 39.900
SÉRTILBOÐ NÚNA: Kr. 24.950
Ath. að fjölmörg stéttarfélög og starfsmenntasjóðir endurgreiða námstefnugjaldið að hluta eða í heild. Ath. málið hjá þínu félagi.
Hóptilboð/fyrirtækjaafslættir:
3+1 FRÍTT (25% afsl.)
7+3 FRÍTT (30% afsl.)
Innifalið eru námstefnugögn og penni.
Skráning með tölvupósti: arni@stjornandinn.is
Símaskráning: 553-0402