Restingmind Concerts kynnir:
Hin goðsagnakennda sveit Exizt með tónleika á Sódóma 12. júní.
Gulli Falk og hinir gömlu jálkarnir í Exizt hafa svo sannarlega gengið í endurnýjun lífdaga. Sveitin kom from á sjónarsviðið í kringum 1990 og gaf 1992 út samnefndan frumburð sinn sem átti þónokkurri velgengni að fagna. Náði lagið Child töluverðri hylli og útvarpsspilun....
[read more]
Restingmind Concerts kynnir:
Hin goðsagnakennda sveit Exizt með tónleika á Sódóma 12. júní.
Gulli Falk og hinir gömlu jálkarnir í Exizt hafa svo sannarlega gengið í endurnýjun lífdaga. Sveitin kom from á sjónarsviðið í kringum 1990 og gaf 1992 út samnefndan frumburð sinn sem átti þónokkurri velgengni að fagna. Náði lagið Child töluverðri hylli og útvarpsspilun. Eftir töluvert spilerí í kjölfar plötunnar Giants of Yore sem kom út 1994, lagðist sveitin hins vegar í dvala.
Nú er hins vegar komið að því. Exizt eru mættir aftur! Nýr söngvari hefur gengið til liðs við bandið, Stefán Jakobsson, eitt mesta talent landsins og áttu þeir sitt fyrsta alvöru gigg á Steelheart tónleikunum á Nasa núna á miðvikudaginn þar sem þeir fóru hreinlega á kostum. Skörtuðu þeir þar líka nýjum ryþmagítarleikara, Otto P Arnarsyni, sem m.a. hefur spilað með Færeyingunum í Týr, en sveitin naut auk þess krafta tveggja bakraddasöngkona. Greinilega ekkert til sparað.
Hvítasunnudagur er málið og hefur Exizt boðið tveimur hljómsveitum með sér, hljómsveitinni Darknote, sem mun koma fram í Danmörku núna í enda júlí og voru nálægt því að næla sér í slot á Wacken hátíðinni núna í sumar, þegar þeir lentu í 4. sæti í Wacken Metal Masters keppninni þar. Klárlega eitt efnilegasta band landsins. Hitt bandið er Thingtak, sem skartar einmitt téðum Stefáni, hinum nýja söngvara Exizt. Er þar á ferðinni stórskemmtilegt powertríó sem hefur verið að störfum í nokkur ár og skapað sér gott nafn í reykvískri tónleikasögu fyrir afbragðs rock'n'roll.
Tónleikarnir verða á Sódóma Reykjavík sunnudaginn 12. júní. Mun húsið opna 22:00 og tónleikarnir byrja 23:00. Munið að dagurinn á eftir er annar í hvítasunnu. :)
Miðaverð: sléttur 1.000 kall
18 ára aldurstakmark.