Næstkomandi föstudag, 2.september fer fram haustfundur Innovit í stofu HT-102 á Háskólatorgi á milli kl. 12 og 13.
Kristján Freyr framkvæmdastjóri Innovit og Margrét Ormslev, sérfræðingur nýsköpunarþjónustu Landsbankans munu kynna samstarf bankans og Innovit. Því næst mun Bala Kamallakharan, fjárfestir halda stutt erindi um fjárfestingarumhverfið á Íslandi og Eva María...
[read more]
Næstkomandi föstudag, 2.september fer fram haustfundur Innovit í stofu HT-102 á Háskólatorgi á milli kl. 12 og 13.
Kristján Freyr framkvæmdastjóri Innovit og Margrét Ormslev, sérfræðingur nýsköpunarþjónustu Landsbankans munu kynna samstarf bankans og Innovit. Því næst mun Bala Kamallakharan, fjárfestir halda stutt erindi um fjárfestingarumhverfið á Íslandi og Eva María Þórarinsdóttir Lange frá ferðaskrifstofunni Pink Iceland sem var í þriðja sæti Gulleggsins 2011 mun lýsa reynslu sinni af keppninni. Að lokum mun Kristján Freyr segja frá verkefnum sem eru framundan hjá Innovit.
Þetta ætti að verða áhugavert og skemmtilegt hádegi fyrir alla þá sem hafa áhuga á nýsköpun og frumkvöðlastarfi á Íslandi og bjóðum við alla hjartanlega velkomna á haustfundinn okkar.