Kæri Íslendingur
Sjálfseignarstofnunin Íbúar býður þér á opnun lýðræðisvefsins Betra Ísland miðvikudaginn 16. nóv. kl. 12.30 á Austurvelli í skjóli fyrir veðri og vindum. Við verðum á suð-vestur horni Austurvallar, hjá gamla Landssímahúsinu og Nasa í stóru samkomutjaldi sem verður vel merkt Betra Ísland til að aðgreina það frá öðrum tjöldum á svæðinu.
...
[read more]
Kæri Íslendingur
Sjálfseignarstofnunin Íbúar býður þér á opnun lýðræðisvefsins Betra Ísland miðvikudaginn 16. nóv. kl. 12.30 á Austurvelli í skjóli fyrir veðri og vindum. Við verðum á suð-vestur horni Austurvallar, hjá gamla Landssímahúsinu og Nasa í stóru samkomutjaldi sem verður vel merkt Betra Ísland til að aðgreina það frá öðrum tjöldum á svæðinu.
Betra Ísland er nýr samráðsvefur fyrir Íslendinga, byggður á sama grunni og Betri Reykjavík. Tilgangur hans er að tengja saman almenning og þingmenn, hvetja til góðrar rökræðu um landsmálin og til að styrkja fulltrúalýðræðið.
Við hvetjum alla til að mæta og vera viðstaddir jákvæðan lýðræðisviðburð á Austurvelli. Að opnun lokinni munu gestir geta skoðað vefinn, fengið sýnikennslu og tekið þátt í umræðum um vefinn og möguleika hans.
Allir eru velkomnir á opnunina og við hvetjum þig til að framsenda þetta bréf á hvern sem þú heldur að hafi áhuga. Einnig á
http://www.facebook.com/event.php?eid=248018028589249
Bestu kveðjur
Gunnar og Róbert
Nánari upplýsingar:
Gunnar Grímsson
897-8229
gunnar@ibuar.is
Róbert Viðar Bjarnason
694-4411
robert@ibuar.is
Meira um vefinn Betra Ísland:
Á honum eru öll lagafrumvörp og þingsályktunartillögur sem nú liggja fyrir Alþingi en á Betra Ísland gefst almenningi kostur á að láta skoðun sína á þeim í ljós og færa fram rök með þeim eða á móti. Allar ræður á Alþingi eru aðgengilegar sem einstök myndskeið og auðvelt er að deila þeim á Facebook eða öðrum samskiptamiðlum.
Þegar ákveðinn fjöldi notenda styður eða er á móti einhverju þingmáli þá verða rök og umræður sendar sjálfvirkt inn sem umsögn til nefnda Alþingis á meðan málið er í vinnslu. Einnig má hugsa sér að þingmenn geti tekið mál sem koma inn frá almenningi og með lítilli fyrirhöfn breytt þeim í þingsályktunartillögur eða jafnvel lagafrumvörp.
Meira um Íbúa SES
Íbúar ses er sjálfseignarstofnun sem er ekki rekin í hagnaðarskyni heldur höfum við þá hugsjón að stuðla að opnara og virkara lýðræði hvar sem er í heiminum. Síðan 2008 höfum við unnið að því að bæta þjóðmálaumræðuna og auka traust í þjóðfélaginu.
Við viljum tengja saman kjósendur og umbjóðendur þeirra, kalla eftir hugmyndum almennings og auka samráð. Við störfum með öllum sem vilja vinna að bættu lýðræði af heilindum.
Íbúar ses unnu í október 2011 virt evrópsk lýðræðisverðlaun, World eDemocracy Awards, fyrir góða hugbúnaðarlausn sem virkar í reynd og hefur m.a. verið notuð í Reykjavík og á Grikklandi. Íbúar ses urðu hlutskarpastir af 18 aðilum en verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2004.