Við vildum bara láta meðlimi hópsins vita að 1. des klukkan 23:59 er síðasti séns á að skrá sig úr ríkiskirkjunni og láta sóknargjöldin fara eitthvert annað fyrir næsta ár.
Flestir meðlimir AARK eru löngu búnir að þessu, en endilega hvetjið vini og vandamenn sem hafa áhuga til að láta verða af útskráningu fyrir þennan tíma.
Rafræna skráningu úr...
[read more]
Við vildum bara láta meðlimi hópsins vita að 1. des klukkan 23:59 er síðasti séns á að skrá sig úr ríkiskirkjunni og láta sóknargjöldin fara eitthvert annað fyrir næsta ár.
Flestir meðlimir AARK eru löngu búnir að þessu, en endilega hvetjið vini og vandamenn sem hafa áhuga til að láta verða af útskráningu fyrir þennan tíma.
Rafræna skráningu úr ríkiskirkjunni má finna hér:
http://adskilnadur.is/netskraning-ur-rikiskirkjunni
Ef vinir ykkar og vandamenn kunna ekki mikið á tölvur, þá má auðvitað líka rétta þeim útprentuð eyðublöð og bjóðast til að fara eitt stykki ferð niður í Þjóðskrá fyrir þau.
Hér má prenta út eyðublað (annaðhvort fyrir fullorðinn eða fyrir barn yngra en 16 ára):
http://www.skra.is/pages/1037
ATH að hér er ekki verið að hvetja fólk sérstaklega til að skrá sig sem "utan trúfélaga". Ef vinir þínir og vandamenn aðhyllast sömu trúarbrögð og ríkiskirkjan (þ.e. lútersk-evangelíska kristni), þá er réttast að skrá sig í Fríkirkjuna í Reykjavík, Óháða Söfnuðinn, eða Fríkirkjuna í Hafnarfirði.
Og já, endilega hakið við "attending" og deilið á vegg til að auka útbreyðslu þessarra upplýsinga.