Hvernig er það, verður ekki einhver rosaleg tveggja daga veisla á Café Rósenberg milli jóla og nýárs?
-Hvort það verður.
Og hvað? Þetta eru ekki jólagestir Bó, er það?
-Nei biddu fyrir þér. Þetta eru jólagestir Gó, eða Jóla Gó eins og þau kalla þetta.
Já ókei ég skil. Og hverjir syngja?
Nú það verða:
Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson, Högni...
[read more]
Hvernig er það, verður ekki einhver rosaleg tveggja daga veisla á Café Rósenberg milli jóla og nýárs?
-Hvort það verður.
Og hvað? Þetta eru ekki jólagestir Bó, er það?
-Nei biddu fyrir þér. Þetta eru jólagestir Gó, eða Jóla Gó eins og þau kalla þetta.
Já ókei ég skil. Og hverjir syngja?
Nú það verða:
Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson, Högni Egilsson, Aron Steinn Ásbjarnarson, Sigurlaug Gísladóttir, Dísa Jakobs, Sigtryggur Baldursson og Helgi Björns.
Vá en gaman. Og það er hljómsveit líka, er ekki?
-Nú vitaskuld. Það eru engir aðrir en:
Guðmundur Óskar Guðmundsson á bassa, Daníel Friðrik Böðvarsson á gítar, Hjörtur Ingvi Jóhannson á píanó, Magnús Trygvason Eliassen á trommur, Ari Bragi Kárason á trompet, Jóel Pálsson á saxófón, Leifur Jónsson á básúnu.
Þetta hljómar ótrúlega vel. Getur maður keypt miða í forsölu?
-Nei miðar verða bara seldir við hurð.
Já auðvitað. Og hvað kostar miðinn?
-Litlar 2000 kr.
Já þú segir það. Og þetta byrjar hvenær, bara uppúr níu.
-Já svona 21:30 hefjast tónleikarnir. Svo verður glæný jólaplata, "Jól í Skúrnum" til sölu á spottprís.
Heyrðu, þetta hljómar alltof vel. Ég mæti og dreg alla familíuna með. Er reyndar að fara í einhver matarboð þessa daga, en það er alveg upplagt að koma bara beint á Rósenberg eftir matarboðið.
-Sjáumst þá!
Í stuttu;
Café Rósenberg, 27. og 28. desember kl 21:00.
2000 kr. inn. Miðar seldir við hurð. Enginn posi.