Hljómsveitin Hjaltalín hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarin misseri. Sveitin hefur hins vegar verið að vinna í nýju efni og í byrjun janúar mun sveitin halda í hljóðver til að leggja drög að þriðju breiðskífu sveitarinnar.
Sveitin vill af þeim sökum gefa forsmekkinn af því sem koma skal með tónleikum á Faktorý, fimmtudagskvöldið 29. desember. Á...
[read more]
Hljómsveitin Hjaltalín hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarin misseri. Sveitin hefur hins vegar verið að vinna í nýju efni og í byrjun janúar mun sveitin halda í hljóðver til að leggja drög að þriðju breiðskífu sveitarinnar.
Sveitin vill af þeim sökum gefa forsmekkinn af því sem koma skal með tónleikum á Faktorý, fimmtudagskvöldið 29. desember. Á boðstólnum verður haugur af nýju lögum, í bland við eldri slagara.
Eftir tónleikana mun Hjaltalín aftur skríða inn í hýði sitt, og hyggst ekki snúa þaðan aftur fyrr en ný platan er orðin að veruleika.
Sérstakir hátíðargestir á tónleikunum verður hljómsveitin Nolo, og aðgangseyrir kr. 1.500-