Tvær myndlistarsýningar laugardag 21. janúar kl. 17 í Kling og Bang gallerí, Hverfisgötu 42.
Erling T.V. Klingenberg
KRAFTMIKIL KÚNST – POWERFUL PICTURES
(þráhyggja-frumleiki) (obsession-original
Ragnar Már Nikulásson
OG ALLAR GIRNDIR LAUSBEISLAÐAR
Listamennirnir Erling T.V. Klingenberg og Ragnar Már Nikulásson opna tvær myndlistarsýningar í Kling og Bang gallerí...
[read more]
Tvær myndlistarsýningar laugardag 21. janúar kl. 17 í Kling og Bang gallerí, Hverfisgötu 42.
Erling T.V. Klingenberg
KRAFTMIKIL KÚNST – POWERFUL PICTURES
(þráhyggja-frumleiki) (obsession-original
Ragnar Már Nikulásson
OG ALLAR GIRNDIR LAUSBEISLAÐAR
Listamennirnir Erling T.V. Klingenberg og Ragnar Már Nikulásson opna tvær myndlistarsýningar í Kling og Bang gallerí laugardaginn 21. janúar kl. 17. Hin kraftmikla hljómsveit Alchemia mun leika fyrir opnunargesti.
Tvær sýningar sameinast í samtali verkanna, þar sem eðli og kraftar takast á, sérstaklega þegar kemur að keðjuverkun, virkni og framleiðsluferils verkanna. Það er einmitt ástæðan fyrir því að þessar tvær sýningar eru settar fram saman, fyrir utan að opnunardagurinn 21.janúar er mikilvægur dagur í lífi listamannanna tveggja.
Í sýningarskrám hefur m.a. eftirfarandi verið ritað um þá Erling og Ragnar:
Í tæpa tvo áratugi hefur Erling T.V. Klingenberg fengist við hin ytri tæki og tól listarinnar sem og minna sýnilega fylgihluti hennar, s.s. kvíða og þrána eftir frægð. Litir, hreyfing og hin frjálsa myndbygging verkanna er prýða veggi gallerísins eru kunnugleg og minna á liðna tíma. Hvað hyggst Erling fyrir nú? Er hann að gera tilkall til ákveðins tímabils í listasögunni, eins og hann hefur gert áður? Eða er hér e.t.v. um einlægari nálgun að ræða? Erling hefur árum saman gefið ótæpilega af sér í nafni hugsjóna sinna og við höfum fylgt honum fúslega eftir. Á þeirri vegferð hefur hann eignast einlæga aðdáendur, hlotið viðurkenningu víða og uppfyllt væntingar okkar aftur og aftur. Velgengnin hefur ekki verið átakalaus því að eins og hann segir sjálfur ‘er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu.’ Sýningin er áleitin tilraun Erlings til undankomu, undan væntingum okkar til verka hans og til hans sem listamanns.
Augljóslega hefur hann skilið okkur eftir í rykinu.
Samhengi og samband hlutanna, allt frá gangi himintunglanna til hinna agnarsmáu einda er mynda veröld okkar, er viðfang sýningar Ragnars Más Nikulássonar. Ferlar hlutanna innan þessa samsetta heims eru ekki línulegir, heldur víbrandi, stöðugir árekstar einda sem rekast á og breyta stefnu. Frá Plató til Newton, til skammta- og strengjafræði samtímans, þar sem eðli og kraftar takast á, hreyfing gagnstætt kyrrstöðu, massi gagnstætt tóminu. Höfum við ef til vill verið of fjót á okkur að afskrifa tilvist bylguberans, ljósvakans, etersins? Hvaða orka afhjúpast í millibilinu, í eyðunum, í tómarúminu?´
Sýningin stendur til 19.febrúar og er Kling & Bang gallerí opið fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 14 til 18. Allir velkomnir og aðgangseyrir er enginn.