Vilt þú skerpa á samningatækni þinni?
Aldís Sigurðardóttir þjálfar lið Háskólans í Reykjavik ásamt Aðalsteini Leifssyni fyrir heimsmeistarakeppni í samningatækni sem fer fram í París á þessu ári. Hún er viðskiptafræðingur að mennt með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum. Aldís hefur langa reynslu af samningagerð í atvinnulífinu og mun veita ráðleggingar og...
[read more]
Vilt þú skerpa á samningatækni þinni?
Aldís Sigurðardóttir þjálfar lið Háskólans í Reykjavik ásamt Aðalsteini Leifssyni fyrir heimsmeistarakeppni í samningatækni sem fer fram í París á þessu ári. Hún er viðskiptafræðingur að mennt með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum. Aldís hefur langa reynslu af samningagerð í atvinnulífinu og mun veita ráðleggingar og taka við fyrirspurnum frá Korku konum á Awesomeness fimmtudaginn 16. febrúar.
Helstu atriði sem farið er yfir:
• Erfiðleikar með að semja við birgja
• Hvernig best er að byrja samningaferlið
• Hvaða gryfjur þarf að varast
• Hvað okkur konum hættir til að flaska á?
------
Eftir samningatæknina verður boðið upp á örkynningar fyrir þær sem vilja, möguleiki að vera bæklinga eða sýnishorn, en umfram allt nafnspjöld :)
Hver kynning er ca 2-3 mín. þannig að best væri að vita fyrirfram hverjar hafa áhuga á því og láta vita í netfangið lilja@vegaljos.is.
------
1919 verður með Happy Hour fyrir okkur og verður hægt að panta sér eitthvað af matseðlinum, það er því flott að mæta tímanlega svo hægt verði að ganga frá pöntunum kl. 19.30-20.00