Gaukurinn kynnir Uppvakningakvöld! Tónleikaröð þar sem gamlar sveitir rísa upp frá dauðum og stíga á svið í endurnýjun lífdaga.
Eftir langar og strangar samningaviðræður í reykfylltum bakherbergjum er búið að yfirstíga hið ómögulega. Rokksynir Íslands munu loksins koma saman á ný eftir margra ára fjarveru og spila á eigin tónleikum alla sína slagara.
Í þetta...
[read more]

Í þetta eina skipti munu Hafnarfjarðar meistararnir ríða á vaðið með einstökum tónleikum enda hefur sveitin ekki spilað á eigin tónleikum í fjöldamörg ár. Botnleðju þarf vart að kynna enda ein vinsælasta rokksveit sem Ísland hefur alið af sér. Margverðlaunuð og gífurlega kraftmikil tónleikasveit. Þessi viðburður er á heimsmælikvarða og hvalreki fyrir tónlistarunnendur.
Forsala er hafin á miði.is. Tryggðu þér miða í tæka tíð!
http://midi.is/tonleikar/1/6935/