ÓkeiBæ kynnir:
MYNDASÖGUÁSKORUN ÓKEI BÆ !!!
Síðasta ár hélt ÓkeiBæ myndasögukeppni fyrir tímaritið ÓkeiPiss sem var gefið á "Ókeypis Myndasögudaginn". Bestu sögurnar voru birtar í blaðinu ásamt efni frá helstu myndasöguhöfundum landsins.
Nú er komið að því aftur! Þann 5.maí næstkomandi verður hinn alþjóðlegi "Free Comic Book Day!"...
[read more]
ÓkeiBæ kynnir:
MYNDASÖGUÁSKORUN ÓKEI BÆ !!!
Síðasta ár hélt ÓkeiBæ myndasögukeppni fyrir tímaritið ÓkeiPiss sem var gefið á "Ókeypis Myndasögudaginn". Bestu sögurnar voru birtar í blaðinu ásamt efni frá helstu myndasöguhöfundum landsins.
Nú er komið að því aftur! Þann 5.maí næstkomandi verður hinn alþjóðlegi "Free Comic Book Day!" Nexus mun gefa blöð (ég skirfaði næstum "gefa blóð") og ÓkeiBæ gefur út ÓKEIPISS #2!
Vilt ÞÚ vera með? Nú skorum við á þig að senda okkur frumsamda myndasögu.
EN EKKI BARA ÞAÐ, heldur höldum við líka forsíðukeppni. fyrir þá sem nenna ekki að segja sögu og vilja bara teikna.
Reglurnar í ár:
MYNDASÖGUKEPPNIN:
1. Hún má vera 1-4 síður.
2. Hún má vera 0-1000000 rammar.
2. Hún má vera svarthvít og hún má vera í lit.
3. Hún má vera eftir einn aðila eða fleiri.
4. Hún má vera eftir ungmenni eða gamalmenni.
FORSÍÐUKEPPNIN
1. Á að vera í lit.
2. Á að vera awesome.
3. Á ekki að vera með titli (við sjáum um að setja titilinn inn, en gerðu ráð fyrir að hann verði efst eins og á hefðbundnum myndasögum).
Sendist í góðri upplausn á: okei@okei.is
A. Merkið póstinn ÓKEIPISS MYNDASAGA eða ÓKEIPISS FORSÍÐA
B. Merkið fylgiskjalið með nafni keppenda og blaðsíðutali ef það á við.
ÓkeiPiss verður prentað í stærðinni B5 (176mm × 250mm, eins og bandarískar myndasögur).
Topp 5 sögurnar birtast í Ókeipiss #2
Skilafrestur er 10. apríl.
Ókei bæ!
PS
einhverjar spurningar? vinsamlegast póstið þeim á spjallborð þessa atburðar.