Að kvöldi hins 5. júní og aðfaranótt 6. júní 2012 getur þú orðið vitni að einstökum stjarnfræðilegum atburði þegar Venus gengur fyrir sólina. Þvergangan hefst klukkan 22:04 og tekur rúmar sex klukkustundir en Reykjavík er eina borgin í heiminum þar sem sólin sest og rís aftur á meðan hún stendur yfir. Nú er lag að grípa tækifærið því 235 ár eru þangað til...
[read more]
Að kvöldi hins 5. júní og aðfaranótt 6. júní 2012 getur þú orðið vitni að einstökum stjarnfræðilegum atburði þegar Venus gengur fyrir sólina. Þvergangan hefst klukkan 22:04 og tekur rúmar sex klukkustundir en Reykjavík er eina borgin í heiminum þar sem sólin sest og rís aftur á meðan hún stendur yfir. Nú er lag að grípa tækifærið því 235 ár eru þangað til að þessi sjaldgæfi atburður sést aftur, frá upphafi til enda, frá Íslandi.
Félagsmenn Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness víða um land munu fylgjast grannt með þvergöngu Venusar 5.-6. júní 2012 (stj1209). Fulltrúar félagsins á Þingeyri, Dalvík/Fjallabyggð, Akureyri, Húsavík og í Vestmannaeyjum bjóða áhugasömum í sínum bæjarfélögum að koma og fræðast um sólina og skoða hana í sjónauka eða með myrkvagleraugum (bæði hægt að fá lánuð ókeypis gleraugu eða kaupa þau á 500 kr. meðan birgðir endast). Áhugasamir geta einnig fengið glaðning á meðan birgðir endast.
Mikilvægt er að taka sér stöðu þar sem fjöll birgja ekki sýn í norðvesturátt og norðausturátt.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness verður við Perluna frá klukkan 21:00 og eru allir hjartanlega velkomnir. Við bendum fólki jafnframt á að fylgjast með blogginu , Facebook og Twitter fyrir frekari upplýsingar.